Ávinningur
Helstu kostir Kjarna
Aukin upplýsingagjöf
Bætt ákvarðanataka og yfirsýn með allar mannauðs- og launaupplýsingar á sama stað.
Skilvirkni í launavinnslu og mannauðsstjórn
Fullkomið flæði er á milli kerfishluta í Kjarna sem og yfir í önnur kerfi.
Hagkvæmni í hýsingu og viðhaldi
Örugg hýsing Kjarna hjá Origo tryggir einfaldleika í viðhaldi og dregur úr kostnaði við rekstur.
Kjarni
Kerfishlutar
Mannauður
Halltu utanum grunngögn starfsfólks á öruggann og einfaldan máta í mannauðshluta Kjarna.
Ráðningar
Taktu á móti starfsumsóknum á vefnum þínum eða á Kjarna vef. Einfalt og notendavænt umhverfi til úrvinnslu umsókna.
Fræðsla
Settu upp fræðsludagskrá fyrirtækisins og vertu með yfirlit yfir námskeiðsþáttöku starfsfólks. Starfsfólk fær yfirlit yfir námskeið sem eru í boði og geta skráð sig. Einnig er hægt að taka út yfirlit yfir styrktarumsóknir til sveitafélaga og starfsmenntunarsjóða.
Frammistöðumat
Einfaldara frammistöðumat starfsfólks. Stofnaðu frammistöðumatseyðublöð til útfyllingar af starfmanni og yfirmanni á starfsmanavef.
Laun
Hraðvirk og örugg launavinnsla í notendavænu umhverfi ásamt öflugri skýrslugerð sem einfaldar alla yfirsýn yfir launamál fyrirtækisins.
Viðvera
Settu upp þitt eigið viðverukerfi, starfsfólk stimplar sig inn/út til vinnu með einföldum hætti og hefur yfirsýn yfir sínar tímaskráningar.
Dagpeningar
Haltu utan um ferðir starfsfólks með einföldum hætti, bæði innanlands og utan. Hægt er að skrá ferðir á Kjarna vef eða lesa þær inn úr öðrum kerfum.
Mötuneyti
Starfsfólk skráir sig í mat og skráningar flæða yfir í launahluta Kjarna. Mötuneytislausnin býður upp á stakar máltíðir, mataráskrift og kaup á ákveðnum vörutegundum.
APPIÐ
Sæktu Kjarna appið
Í Kjarna appinu getur starfsfólk nálgast grunnupplýsingar um samstarfsfólk sitt, s.s. starfsheiti, símanúmer og netföng. Í appinu er hægt að leita að starfsfólki eftir nafni, starfsheiti, símanúmer o.s.frv. auk þess sem hægt er að hringja eða senda tölvupóst beint úr appinu.